Við erum öll bara fólk og stundum þurfum við einfaldlega að fara á klósett.

Krapp er tól sem hjálpar fólki að finna næsta salerni. Stundum er þægilegt að fá smá aðstoð við að finna næsta postulínsstól til að heimsækja, sérstaklega ef þú ert í bæ sem þú þekkir ekki svo vel — og þess vegna höfum við Krapp. Krapp er tól fyrir alla 🙂

Einfaldasta leiðin til að hafa samband við okkur er með því að senda tölvupóst á netfangið: krapp@krapp.is

Við þiggjum allar ábendingar með þökkum — bæði um efni appsins og salerni sem eru aðgengileg fyrir alla. 🙂